Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

04. febrúar 2008 klukkan 19:25
Nýtt blogg er hætt hér!!!!!!!!!


www.123.is/allyj

5.janúar

05. janúar 2008 klukkan 18:34
já það er komin enn ein helgin og ég bara búin að vera rosa dugleg í dag, taka allt til ryksuga, vaska upp, þurka af og skipta um á rúmminu og svo að sjálfsögðu fór ég í heitt og notagt bað eftir öll herlegheitin. Þetta er róleg helgi hjá mér, Oddur er að vinna alla helgina er að keyra taxann og minns bara að tjilla heima með kisu strákonum mínum. Dunkan vinur Ástu tengdó sem er í heimsókn hjá okkur er að fara í nótt aftur til London og svo er Ásta að fara á mánudaginn og þá erum við bara orðin 3 eftir í húsinu og allt frekar tómlegt hér í Asturtúninu en svo er bara aldrey að vita nema maður skelli sér eitthvað út annað hvort til Söru eða Ástu og leiki sér smá. Ætli það sé eitthvað í imbanum í kveld ?? verð að tékka á því og undirbúa kósý kvöldið mitt ein með sjálfri mér.
Jæjja var að horfa á flugeldasýningu KR út um stofugluggann og hún var rosalega flott.
Ætla að fara að fá mér eitthvað í gogginn þangað til næst og hafið það gott um helgina okidókí bæjó......

Nýtt ár & nýtt blogg

02. janúar 2008 klukkan 02:20
já ég er alls ekki búin að standa mig í þessu blessaða bloggi mínu á árinu sem var að líða maður. Ég er ótrúleg þegar ég tek mér eitthvað sonna fyrir hendur og ætla sko að gera það í þetta skiptið alveg sama hvort það er blogg, líkamsrækt , matarræðið, heilsan eða já bara hvað sem er. Það byrjar vel og svo gefst ég upp hvað er það eiginlega að gefast alltaf upp hvað er maður eiginlega að gera hérna á þessari jörð ef maður getur ekki einu sinni staðist eitt lítið smáatriði ???????............... já stórt er spurt en kannksi lítið um svör en sonna á þetta kannksi bara að vera hver veit ??   Allavegana þá er allt flott að frétta, lífið heldur náttla alltaf áfram sinn vanagang skólinn að fara að byrja ég reyndar ekki búin að borga skólagjöldin en það er bara smá hausverkur því verður reddað á morgunn hehe..... og svo er bara að sjá til hvort mín komist inn í ár. Oddur er að fara að vinna á morgunn og ég ætla að liggja heima í leti með kisunum mínum. Var að velta fyrir mér að fara á Gullfoss & Geysi á morgunn með tengdó, Söru Kiddý og Duncan en þar sem ég var að koma þaðan í gær held ég að ég verði bara heima núna og hvílí mig. Svo á kannksi að skella sér út að borða annað kvöld áður en allir yfirgefa svæðið aftur allir að fara aftur út til London, Danaveldis eða Þýskalands þannig að maður verður að þétta hópinn aðeins saman svo maður verði nú ekki grátandi einn eftir á klakanum.
Áramótin voru bara rosa fín, gott að fara í bústað og gleyma sér í kyrrðinni og njóta þess að vera til frjáls við allt ys og þys.

Jæjja nenni ekki að skrifa meira, þangað til næst ég ætla ekki að lofa neinni færslu á næstunni þetta verður bara að vera sonna því ég er hætt að lofa einhverju sem ég get ekki staðið við ok hafið það gott.
kveðja Allý Pallý ;)

29. október 2007 klukkan 22:44
jæjjja þá er bara kominn vetur heldur betur , vó bara farin að ríma hehe.....já ég hef bara ekki haft tíma til að blogga undanfarna daga, bara búið að vera so mikið að gera eitthvað, er að leysa af í scrapbúðinni í Fjarðarkaupum næstu 4 vikurnar, það er bara rosa gaman,var samt rosa þreytt í fótunum eftir daginn í dag hehe ... sonna er það bara þegar maður tekur að sé vinnu þá má nú búast við því að maður verði þreyttur ekki satt ?? Er nú þegar búin að taka út soldið mikið að vörum , þannig að ég er orðin alveg dáldið vel sett fyrir jólakortagerðina. Nú síðustu vikur eru ekki búnar að vera nógu duglega hvað varðar hreyfingu , ég verð að fara að skoða það mjög vel, svo ég bæti nú ekki á mig kílóunum , sem ég missti í Hveró, þá væri nú dáldið margir 1000.kallar farnir í vaskinn. Síðasta laugardag fór ég í mat til Betu minnar sem er matarkokka snillingur með meiru og eftir það ákváðum við og stelpurnar henar Betu þær Ragna og Erna  að skella okkur til Þóhalls og Glenns í Hallóvín teiti á Bragagötunni og það var alveg hreint magnað , bara eins og í bíómynd , það var gjörsamlega allt skreytt úti sem inni, allt flutt inn frá Bandaríkjunum þá getiði níu ýmindað ykkur hvað þetta var mikið , það má segja að þetta hafi verið eins Hrollvekjumynd eða Adams Family kannski. jæjja ætla aðskella inn myndum frá kveldinu þangað til næst og kommenta so ok allavegana kvitta fyrir komunni


Hafið það rosa gott ;);)

Nýtt útlit ?

08. október 2007 klukkan 13:17

Jæjja þá er mín búin að skipta eina ferðina en um útlit hehe....... svona er ég víst bara , alltaf að breyta , það er svona þegar ég get lítið breytt heima hjá mér þá geri ég það bara í netinu í staðin. Já annars allt ágætt að frétta að kjellunni fer í skólann á miðvikudag og fimmtudag og það á eftir a vera skrítið er ekki búin að vera í mánuð, og allir vissu að ég var að fara á hælið vonandi bara að fólk þekki mig eftir allan þennan tíma, það heldur sjálfsagt að ég sé gjörbreytt manneskja orðin 50 kg og breytt útlit  extrime makeover  eitthvað hehe..... nei segji bara sonna það verður bara gott að hitta alla aftur og takast á við erfið verkefni. Nú á föstudag er ég  að fara í vax í fyrsta skipti það á eftir að verða rosaleg upplifun held ég vá ........ vil helst ekkert vera að hugsa um það , allavegana ekki og mikið híhíhí... en þetta er rosa fagleg og flott stelpa sem er að fara að gera þetta og ég treysti henni alveg 100%. Á laugardaginn 13. okt þá er hittingur hópsina okkar í Hveró og svo ætlum við að hittasst einhverstaðar eftir það og taka nett djamm á þetta, er að ennþá að vinna í staðsettningunni, gæti endað hér á nesinu í stofunni hjá tengdó, sjáum til.
En ég er að spá í fara út að labba og klára hreyfinguna mína í dag þangað til
Adios
Aj ;)

Föstudagskveld..............

28. september 2007 klukkan 23:11
Og ég er ennþá stödd á Hælinu að taka  mig á andlega og líkamlega, þetta er sko búið að vera sannkallað stuð hérna hjá okkur , alveg eins og að vera á heimavistarskóla , eða ég get ýmindað mér það , ég vissi það að ég hefði sko verið pott þétt manneskjan að fara í heimavistarskóla en svo liðu árin og ég er ekki ennþá farin hehehe.......Ullandi Í dag kvöddum við Betu okkar með söknuði í hjarta ohhhhhhuhhuh.... grát grát .......húin útskrifaðist í dag þessi elska. Þannig að allt er frekar tómlegt núna í kvöld. En við stelpurnar í hópnum sátum nú ekki aðgerðarlausar sk, við skelltum okkur í litun og plokkun inn á herbergi 147 til mæðgnana Soffíu og Öldu og vorum þar í góðu yfirlæti, Soffía er snyrtifræðingur og kann ako að gera mann fallegan MÆLI 100% MEÐ HENNI !!!!! Já svo er bara verið að blogga smá og svo horfa kannksi aðeins á imbann og svo að lúlla í hausinn á okkur við erum svo þreytt öll eftir þessa vikur omg.
Á morgun ætlum við að taka vel á því ræktinni og í sundinu og svo skella okkur á Selfoss eða SÓlFOSS eins og einn merkur maður segjir alltaf hehe.....hann er mjög djúpraddaður smá hint híhí............. fyrir ykkur sem eruð að drepast úr forvitni;) Any how við ætlum sem sagt að skella okkur þangað og kíkja í nokkrar búðir og gera það sem konum einum er lagið ekki satt ??? já og bara hafa það notó.
Sunnudagurinn er strax orinn spennandi , við erum öll hópurinn að fara út að borða saman á Rauða Húsinu á Eyrabakka ohhhhhh ég hlakka svo til. Já so ætla ég að reyna að fara að skella inn einhverjum myndum hér inn ok þangað til næst ykkar Aj vilson.

Já eitt í viðbót Allur hópurinn okkar er búin að missa 48,5 kíló samanlagt er það ekki rosalega mikið , það finnst mér ...

Jæjja

22. september 2007 klukkan 22:20

Þá  er búið að stofna blogg fyrir o hóp 13, og hér geta allir meðlimir hans bloggað um allt sem þá langar til að tala um. Hópurinn byrjaði í meðferð á heilsustofnun HVeragerðis eða HNFLÍ þann 3. september 2007 og hefur bara gengið alveg glimmrandi vel hjá okkur. Við útskrifumst þann 3. okt. Meðferðin tekur ár og byrjar þannig að fyrst er mánaðardvöl og svo mætum við annan hvern laugard. í hverjum mánuði og svo eftir 6 mánuði er viku innlögn og svo aftur eftir aðra 6 mánuði. Meðlimir hópsins eru :
Aðalbjörg (Allý)
Alda
Eva
Eyrún
Kristjana
Ragna
Soffía
Sveinbjörn
þórhallur.
Valdi

Og svo er bara að byrja að blogga og setja inn myndir ;);)

Jæjja

24. ágúst 2007 klukkan 18:18
ég sem var búin að gera svo fína færslu og ætlaði að vera svo sniðug að setja eina mynd inn líka en NEI allt strokaðist út


Arg.......
er komin í smá bloggpásu þar sem þetta er búið að gerast hvað eftir annað.

Heitt heitt heitt....................

15. júlí 2007 klukkan 13:22

Jæjja það á bara gjörsamlega að steikja mann á pönnu hérna á norðurskautinu, það liggur við að maður fari hreinlega bara að flýja land ef þessu fer ekki að linna , NEI segji sonna þetta þetta er bara rosa flott , jæjja er farin í bústaðinn og kem ekki fyrr en eftir helgina þangað til þá hafið það rosa gott í veðurblíðunni. ;)

í sól og sumari..........trallala la........

Sól & Blíða

30. júní 2007 klukkan 17:12
Já það er svo sannarlega búið að vera spánarveður hér á Íslandinu í þó nokkurn tíma bara, maður hugsar ekki um annað en að vera í sólbaði á svölunum og drekka grape með klaka í. ohhhhhhhhh ég elska að búa hérna og hugsa til þess að óheppnir þeir sem eru núna í útlöndum og missa af veðurblíðunni hér. muhhhhhhaaaaa................Svalur 
Vorum í matarboði eða ákváðum að grilla öl saman sem sagt strákarnir sem eru í heimahópnum og makar, %2

Prófíll

  • Nafn: Aðalbjörg Jónsdóttir (Allý)
  • Netfang: allyj@internet.is
  • Staður: Álftanes
  • Atvinna: Iðnskólinn í Hafnarfirði

Leit

Klukkan

Könnun

Var strengt áramótaheit ???